Heiðrún Fjóla Pálsdóttir, VBC, tryggði sér tvo Íslandsmeistaratitla í brasilísku Jiu Jitsu í galla á Íslandsmeistaramóti BJÍ sem haldið var laugardaginn 2. nóvember síðastliðinn í Mjölni.
Þetta var frábær endurkoma hjá Heiðrúnu Fjólu eftir barnsburð en hún tók Íslandsmeistaratitilinn bæði í +74 kg flokknum og í opnum flokki. Hún æfir með Berserkjum BJJ á Selfossi en keppti undir merkjum VBC á mótinu.
Berserkir BJJ áttu einn keppanda á verðlaunapalli en Hekla Dögg Ásmundsdóttir var eina hvíta beltið í +74 kg flokknum og þar tók hún bronsið í erfiðum flokki.
Yfir 40 keppendur frá frá sjö félögum tóku þátt í mótinu.