Hamar og Limax spila seinni leik liðanna í áskorendakeppni Evrópska blaksambandsins í Digranesi í Kópavogi í kvöld kl. 19:00.
Hamar tapaði fyrri leiknum 3-0 en átti ágæta spretti í leiknum, sérstaklega í annari hrinu. Það er því á brattann að sækja fyrir Hamarsmenn sem ekki njóta heimavallaréttarins til fulls þar sem keppnisvöllur þeirra í Hveragerði uppfyllir ekki staðla Evrópska blaksambandsins.
Þetta er í fyrsta skiptið sem íslenskt lið tekur þátt í þessari keppni á vegum CEV og Hamarsmanna bíður ærið verkefni í Kópavoginum í kvöld. Að sögn fyrirliða Hamars, Hafsteins Valdimarssonar, eru Hamarsmenn tilbúnir í leikinn. Allir leikmenn eru heilir heilsu og vonast þeir til að blakáhugafólk láti sjá sig á pöllunum í Digranesi enda um einstakan viðburð að ræða í íslenskri blaksögu.