Markmaðurinn Henriette Østergård hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Selfoss.
Henriette, sem er tvítug, kom í fyrra til Selfoss frá Elitehåndbold Aalborg sem er félag í efstu deild í Danmörku.
Hún hefur leikið lykilhlutverk í meistaraflokki kvenna í vetur og var með yfir 40% markvörslu að meðaltali í leikjum vetrarins. Selfoss varð í 2. sæti í Grill 66 deildinni í vetur en eygir sæti í Olísdeildinni, komi til þess að liðum verði fjölgað þar.
Í tilkynningu frá handknattleiksdeild Selfoss er því fagnað að að Henriette skuli velja áfram að vera hér á Selfossi.