97. héraðsþing HSK 2019 verður haldið í íþróttahúsinu á Laugalandi í Holtum næstkomandi fimmtudag, þann 14. mars. Þetta er í fyrsta skipti í 109 ára sögu sambandsins sem þingið er haldið að kvöldi til í miðri viku.
Lengst af voru þingin tveggja daga, en hafa verið haldin á einum degi frá árinu 1995. Reyndar voru fyrstu aðalfundir sambandsins frá 1910 – 1921 haldnir á einum degi.
Rétt til setu á þinginu eiga 125 fulltrúar frá 57 aðildarfélögum HSK og tveimur sérráðum sambandsins, auk gesta.
Á þiningu verður í fyrsta sinn kunngjört val á íþróttakarli og íþróttakonu HSK, en reglugerð um kjör á íþróttamanni HSK var breytt á héraðsþingi 2018. Framvegis verða íþróttakarl og íþróttakona HSK valin úr röðum þeirra sem tilnefnd eru í einstökum greinum.