Hlynur Geir kylfingur ársins

Á aðalfundi Golfklúbbs Selfoss í síðustu viku voru afhentar viðurkenningar fyrir afrek sumarsins. Hlynur Geir Hjartarson var valinn kylfingur ársins og Andri Páll Ásgeirsson efnilegasti kylfingurinn.

Kylfingur ársins var valinn Hlynur Geir Hjartarson en hann vann meistaramót GOS og hefur verið einn fremsti kylfingur landsins.

Andri Páll Ásgeirsson var valinn efnilegasti kylfingurinn. Andri Páll hefur náð miklum framförum í sumar og lækkað mikið í forgjöf með miklum æfingum.

Símon Leví Héðinsson fékk háttvísibikarinn. Bikarinn er veittur ár hvert þeim kylfingi undir 20 ára aldri, sem endurspeglar hvað mest þá eiginleika sem stjórn Golfklúbbs Selfoss vill sjá hjá unglingum. Sá sem hlýtur háttvísisbikarinn þarf að hafa mikinn íþróttaanda, gefast aldrei upp, sýna miklar framfarir, mikla ástundun, vera sér og klúbbnum til mikills sóma bæði innan vallar sem og utan og vera með framkomu sinni fyrirmynd fyrir aðra.

Axel Óli Ægisson fékk bikar fyrir mestu lækkun á forgjöf. Axel lækkaði forgjöf sína úr 36 í 19,5 og er það lækkun um 16,5 högg. Glæsilegur árangur hjá Axel. 58 kylfingar lækkuðu í forgjöf síðasta sumar.

Elsti golfarinn í GOS sem skilaði inn skori var Ingólfur Bárðarson fæddur 1934 en yngsti golfarinn í GOS sem skilaði inn skori var Sverrir Óli Bergsson en hann er fæddur 2004. Það er því 70 ára aldursmunur á þeim.

Bárður Guðmundarson var endurkjörinn sem formaður í eitt ár en öll stjórnin gaf kost á sér fyrir utan Pétur Hjaltason sem hefur verið gjaldkeri í níu ár. Jens Uwe Friðriksson tekur við af honum sem gjaldkeri og Benedikt Magnússon kemur inn í stjórn. Fyrir sitja Jónbjörg Kjartansdóttir ritari og Halldór Morthens.

Fyrri greinÍ áfalli eftir reiðilestur
Næsta greinFjóla sigraði á sínu fyrsta móti