Hólmfríður Arna Steinsdóttir hefur samið við handknattleiksdeild Selfoss til tveggja ára.
Hólmfríður, sem er aðeins 17 ára, er leikstjórnandi og spilaði með Selfoss tímabilið 2019-20.
Hólmfríður er uppalin í Eyjum og spilaði með ÍBV á síðasta tímabili. Þá hefur hún verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands.
„Við bjóðum Hólmfríði hjartanlega velkomna til baka og verður spennandi að fylgjast með meistaraflokki kvenna á komandi tímabili, undir stjórn Svavars Vignissonar,“ segir í fréttatilkynningu frá Selfyssingum.