Selfyssingurinn Hólmfríður Magnúsdóttir var valin besti leikmaður annars þriðjungs Pepsi Max-deildar kvenna í knattspyrnu í kosningu á Fótbolti.net.
Það er Origo sem verðlaunar leikmann hvers þriðjungs í Pepsi Max-deildum karla og kvenna í sumar. Lesendur Fótbolta.net fengu að velja milli fjögurra tilnefndra leikmanna og Hólmfríður fékk 40% atkvæða.
Hún fékk í verðlaun glæsileg Sonu bluetooth heyrnartól frá Origo.
Valið var unnið í samvinnu við Heimavöllinn en sérfræðingar þáttarins tilnefndu fjóra leikmenn. Það voru auk Hólmfríðar þær Hlín Eiríksdóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir úr Val og Agla María Albertsdóttir úr Breiðabliki.
Þessar fjórar eru tilnefndar sem Sony leikmaður annars þriðjungs Pepsi Max! Hver hefur verið best að þínu mati? #fotboltinet #Heimavöllurinn
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) August 12, 2019