Jonathan Hood skoraði bæði mörk Ægis sem gerði 2-2 jafntefli við Reyni Sandgerði á heimavelli í 3. deild karla í knattspyrnu í kvöld.
Þetta var fyrsta stig Ægis í deildinni og það munaði minnstu að þau yrðu þrjú.
Reynir komst yfir á 28. mínútu en Hood jafnaði mínútu síðar fyrir Ægi. Staðan var 1-1 í hálfleik. Hood skoraði svo aftur á 69. mínútu og Ægir leiddi 2-1 allt þar til á fimmtu mínútu uppbótartíma að Reynismenn náðu að jafna.
Ægir hefur 1 stig í 6. sæti deildarinnar.