HSK fékk fyrirmyndarbikarinn annað árið í röð

Á mótsslitum 18. Unglingalandsmóts UMFÍ á Akureyri í gærkvöldi var tilkynnt hverjir hefðu hreppt Fyrirmyndarbikarinn. Annað árið í röð féll bikarinn í skaut Héraðssambandsins Skarphéðins, HSK.

Þetta er annað árið röð sem bikarinn fer til HSK en alls hefur HSK fengið þennan bikar fimm sinnum.

Fyrirmyndarbikarinn var gefinn af Íþróttanefnd ríkisins og er viðurkenning þess sambandsaðila UMFÍ sem sýnt hefur eftirfarandi atriði. Góða umgengni á keppnisstöðum, tjaldsvæði og á almennum svæðum mótsdagana. Háttvísi og prúða framgöngu, m.a. í keppni og við inngöngu á setningu mótsins.

Alla mótsdagana er nefnd að störfum sem fylgjast með keppendum og öðrum gestum sambandsaðila UMFÍ og metur frammistöðu þeirra út frá ofangreindum þáttum. Formaður UMFÍ, formaður unglingalandsmótsnefndar og formaður þess sambandsaðila UMFÍ sem heldur mótið hverju sinni ákveða valið á fyrirmyndarliði Unglingalandsmótsins.

Fyrri greinGlæsileg hátíð á Selfossi um næstu helgi
Næsta greinÁlfhildur Þorsteins: Úrelt dagforeldrakerfi