Hulda fánaberi Íslands á stærsta EM frá upphafi

Fimmta Evrópumeistaramót IPC (Alþjóðaólympíuhreyfingar fatlaðra) í frjálsum var sett í Grosseto á Ítalíu í gærkvöldi. Hulda Sigurjónsdóttir, Suðra, var fánaberi Íslands við opnunarhátíðina.

Ásamt Huldu keppa þau Helgi Sveinsson, Ármann, Arnar Helgi Lárusson, UMFN og Stefanía Daney Guðmundsdóttir, Eik, á mótinu.

Alls eru 36 lönd mætt til keppni á stærsta móti ársins fyrir Paralympics í Ríó de Janeiro sem haldnir verða í septembermánuði. Um 600 íþróttamenn keppa í mótinu næstu vikuna sem gerir EM í Grosseto stærsta EM frá upphafi hjá IPC.

Á sunnudag verður Arnar Helgi Lárusson fyrstur Íslendinga til að hefja keppni er hann keppir í 200m spretti í hjólastólakappakstri (e. wheelchair racing) en Arnar keppir í flokki T53.

Fyrri greinSmári lætur af störfum eftir rúma fjóra áratugi
Næsta greinÆgir náði í stig – KFR tapaði