Hlaupahópurinn Frískir Flóamenn stendur fyrir Intersporthlaupinu eins og vindurinn þann 1. maí næstkomandi og hefst það kl. 13:00.
Vegalengdir eru 10 km og 5 km. Lengd 10 km hlaupsins er löglega mæld samkvæmt reglum FRÍ.
10 km eru hlaupnir frá Intersporti [BYKO] á Selfossi um Larsenstræti og Gaulverjabæjarveg.
5 km hlaupið hefst á Gaulverjabæjarvegi við Bár. Í hvora áttina verður hlaupið fer eftir því hvort hagstæðara er með tilliti til vindáttar.
Forskráning er á hlaup.is og lýkur 30. apríl kl. 21:00. Skráning og afhending keppnisnúmera er í Intersporti Selfossi frá kl. 14-16 þann 30. apríl. Keppnisnúmer verður einnig hægt að nálgast á hlaupadegi frá kl. 11:00 á sama stað.
Þátttökugjald er kr. 3.000 fyrir 16 ára og eldri en kr. 1.000 fyrir 15 ára og yngri. Greitt með seðlum, enginn posi á staðnum.
Rúta flytur keppendur að eða frá rásmarki, brottför er frá Intersport kl. 12:20. Keppendur fá frían aðgang í Sundhöll Selfoss eftir hlaup.
Aldursskipting hjá konum og körlum;
5 km
• 15 ára og yngri
• 16 og eldri ára
10 km
• 39 ára og yngri
• 40-49
• 50-59
• 60 ára og eldri
Verðlaun verða fyrir fyrsta keppenda í hverjum flokki. Vegleg sérverðlaun frá Intersporti verða fyrir fyrsta karl og fyrstu konu í hvorri vegalengd. Jafnframt verða útdráttarverðlaun
Tilvalið hlaup til að bæta sig í 10 km eða 5 km hlaupi.
Nánari upplýsingar veitir Magnús s: 840 6320.