Körfuknattleikskonan Íris Ásgeirsdóttir og Úlfar Andrésson, íshokkímaður, hafa verið valin íþróttamenn Hveragerðisbæjar árið 2011.
Valið var tilkynnt á uppskeruhátíð menningar-, íþrótta- og frístundanefndar þann 30. desember sl.
Íris hefur verið burðarás í kvennakörfunni í Hveragerði til fjölda ára. Hún hóf feril sinn í barna og unglingastarfinu og lék með glæsibrag upp alla flokka. Hún var fyrirliði meistaraflokks kvenna á síðustu leiktíð þegar stelpurnar urðu deildarmeistarar Iceland Express deildarinnar 2011. Með því var stærsti titill körfuknattleiksdeildar Hamars, hingað til, í höfn. Íris hefur ekki leikið með Hamri á þessari leiktíð en hún er nú komin heim eftir þróunarstarf í Tanzaníu og mun spila með Hamri seinni hluta tímabilsins.
Þeir íþróttamenn sem voru í kjöri til íþróttamanna ársins 2011 voru:
Hafsteinn Valdimarsson, blaki
Kristján Valdimarsson, blaki
Helga Hjartardóttir, fimleikum
Þuríður Gísladóttir, golfi
Gunnar Marel Einarsson, golfi
Marteinn Sindri Svavarsson, knattspyrnu
Íris Ásgeirsdóttir, körfuknattleik
Úlfar Jón Andrésson, íshokkí
Menningar-, íþrótta- og frístundanefnd heiðraði einnig fimm ungmenni sem voru landsliðsmenn, Íslandsmeistarar og bikarmeistarar á árinu.