Í hraðprófi sem tekið var í hádeginu í dag greindust landsliðsmennirnir Arnar Freyr Arnarsson og Janus Daði Smárason með jákvæð próf og er beðið eftir niðurstöðu PCR prófs.
PCR próf landsliðsins í gærkvöldi voru öll neikvæð er frá eru taldir þeir sjö sem voru í einangrun. Meðal þeirra eru Elvar Örn Jónsson og Bjarki Már Elísson.
Átta leikmenn og einn starfsmaður liðsins hafa þá greinst síðustu daga og eru í einangrun.
Ísland mætir Ólympíumeisturum Frakka kl. 17 í dag.