Strákarnir okkar leika í dag þriðja leik sinn í milliriðli Evrópumótsins í handbolta er þeir mæta Króatíu.
Selfyssingarnir Janus Daði Smárason og Ómar Ingi Magnússon eru ekki í leikmannahópi Íslands í dag sökum veikinda en þeir eru herbergisfélagar á hóteli liðsins í Köln.
Inn í hópinn í þeirra stað koma þeir Kristján Örn Kristjánsson og Einar Þorsteinn Ólafsson.
Selfyssingarnir Bjarki Már Elísson, Elvar Örn Jónsson og Haukur Þrastarson eru á sínum stað í hópnum sem verður í beinni útsendingu kl. 14:30 í Ríkissjónvarpinu.