Selfyssingurinn Jón Daði Böðvarsson skoraði þrennu á fimm mínútum undir lok leiks Ålgård og Viking í norsku bikarkeppninni í knattspyrnu í dag.
Viking vann 0-7 sigur á Ålgård í þessari 1. umferð bikarkeppninnar en Ålgård leikur í norsku D-deildinni.
Jón Daði kom inná sem varamaður á 73. mínútu, í stöðunni 4:0, og skoraði þrjú síðustu mörkin á fimm mínútna kafla í lokin.