Karl Ágúst Hannibalsson verður yfirþjálfari yngriflokkastarfs Körfuknattleiksfélags FSu næsta árið. Á meðfylgjandi mynd handsala þeir Karl Ágúst og Gylfi Þorkelsson, formaður félagsins, samkomulag þess efnis.
Í samkomulaginu felst að Karl Ágúst hefur yfirumsjón með allri yngriflokkaþjálfun hjá félaginu og mun einnig starfa „á gólfinu“ með krökkunum, þar sem hæfileikar hans njóta sín hvað best.
Í tilkynningu frá félaginu segir að það sé mikið fagnaðarefni fyrir félagið og samfélagið hér að fá áfram að njóta krafta þessa frábæra þjálfara. Undir hans stjórn hefur yngriflokkastarf FSu blómstrað á ný og iðkendum fjölgað jafn og þétt.
Ráðning Karls er mikilvægur liður í framtíðaruppbyggingu félagsins, þann stöðugleika og gæðaviðmið sem það hefur að leiðarljósi.