Markmaðurinn Katrín Ósk Magnúsdóttir hefur samið við handknattleiksdeild Selfoss til eins árs.
Katrín er ekki ókunnug á Selfossi, en hún spilaði með meistaraflokk kvenna frá árinu 2013-2017. Hún tók sér frí á síðasta ári og hélt í nám út til Danaveldis.
Í tilkynningu frá handknattleiksdeild Selfoss kemur fram að þar á bæ séu menn og konur gríðarlega ánægð með að Katrín skuli vera komin aftur á heimaslóðir og er hún boðin velkomin aftur heim.