Keppt í formum, bardaga og þrautabraut

Héraðsmót HSK í taekwondo var haldið í Baulu 12. desember sl. Keppt var í formum, bardaga og þrautabraut og skemmtu allir sér hið besta.

Stigakeppni mótsins var tvískipt og unnu Selfyssingar öruggan sigur í báðum flokkum.

Í flokkum 13 ára og eldri hlutu Selfyssingar 81 stig og Dímon var með 27 stig. Í yngri flokkum voru Selfyssingar með 44 stig, Hekla varð í öðru sæti með 12 stig og Dímon varð í þriðja með 10 stig.

Myndir og heildarúrslit má sjá á heimasíðu HSK.

Fyrri greinRafmagnslaust í Mýrdalnum
Næsta greinBæjarstjórnin heiðraði Þóri