KIA Gullhringurinn: Úrslit og myndir

Fremstu menn í Villingaflokki á ferð í Sandvíkurhreppi. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Hjólreiðahátíðin KIA Gullhringurinn fór fram á Selfossi í gær. Um 550 þátttakendur voru skráðir til leiks, sem gerir viðburðinn að stærsta hjólreiðaviðburði ársins.

Mikil eftirvænting var bæði hjá þátttakendum, bæjarbúum og skipuleggjendum en hátíðin var ræst í nýjum miðbæ á Selfossi sem opnaði fyrsta áfanga sinn fyrir gestum í gær.

Aðstæður til hjólreiða voru hinar bestu í gær, sérstaklega þegar leið á kvöldið, þurrt og hægur vindur. Keppendurnir voru víða vel studdir, t.d. þegar þeir hjóluðu í gegnum Stokkseyri, Eyrarbakka og Sandvíkurhreppinn auk þess sem mikil stemmning var við rásmarkið á Eyravegi.

Æringjar. Ljósmynd/Mummi Lú

Fyrstu menn Æringjar 12 km, keppendur 12-16 ára:
Hjalti Geir Jónsson
Hrafnkell Steinarr Ingvason
Viðar Ingi Ragnarsson

Gaulverjar. Ljósmynd/Mummi Lú

Fyrstu menn í 43 km: Gaulverjar (B flokkur)
Karlar
Kjartan Helgason 1:10:41.51 klst
Jón Gunnar Kristjánsson 1:11:04.32 klst
Árni Stefánsson 1:11:07.74 klst
Konur
Diljá Hilmarsdóttir 1:13:58.55 klst
Bryndís Hallsdóttir 1:19:50.95 klst
Fanney Jónsdóttir 1:20:20.50 klst

Villingar. Ljósmynd/Mummi Lú

Fyrstu menn í 59km: Villingar (A flokkur)
Karlar
Einar Júlíusson 1:31:41.68 klst
Stefán Geir Árnason 1:31:42.27 klst
Guðmundur Martinsson 1:31:43.49 klst
Konur
Júlía Oddsdóttir 1:40:33.73 klst
Harpa Mjöll Hermannsdóttir 1:40:41.06 klst
Margrét Helga Kr. Stefánsdóttir 1:43:48.03 klst

Elite-flokkur. Ljósmynd/Mummi Lú

Fyrstu menn í Elite Flokki (Flóabardaginn 90 km)
Karlar
Þorsteinn Bárðarson 2:19:57.95 klst
Thomas Skov Jensen 2:20:04.32 klst
Bjarki Sigurjonsson 2:20:02.57 klst
Konur
Íris Ósk Hjaltadóttir 2.40.53.83 klst
Kristrún Lilja Daðadóttir 2.40.54.47 klst

Þórir Erlingsson, mótsstjóri, við rásmarkið. sunnlenska.is/Guðmundur Karl
sunnlenska.is/Guðmundur Karl
sunnlenska.is/Guðmundur Karl
Einar Bárðarson, skipuleggjandi keppninnar. sunnlenska.is/Guðmundur Karl
sunnlenska.is/Guðmundur Karl
sunnlenska.is/Guðmundur Karl
sunnlenska.is/Guðmundur Karl
sunnlenska.is/Guðmundur Karl
Heiðursgesturinn Arnar Helgi Lárusson sem nýlega hjólaði 400 km á sólarhring, frá Hornafirði á Selfoss. sunnlenska.is/Guðmundur Karl
sunnlenska.is/Guðmundur Karl
sunnlenska.is/Guðmundur Karl
sunnlenska.is/Guðmundur Karl
sunnlenska.is/Guðmundur Karl
sunnlenska.is/Guðmundur Karl
sunnlenska.is/Guðmundur Karl
sunnlenska.is/Guðmundur Karl
sunnlenska.is/Guðmundur Karl
Fyrri greinÆgismenn tryggðu sér stig undir lokin
Næsta greinFræðsluganga um jurtagarðinn í Skálholti