Selfyssingar gengu á dögunum frá ráðningarsamning við Gunnar Rafn Borgþórsson sem þjálfara karlaliðs félagsins í knattspyrnu. Gunnar mun þjálfa liðið með Guðmundi Benediktssyni og þeim til aðstoðar verður áfram Ómar Valdimarsson.
Gunnar hefur verið yfirþjálfari yngri flokka félagsins undanfarin ár og hefur yfirumsjón með Knattspyrnuakademíu Íslands á Selfossi.
Við sama tilefni var undirritaður samningur við þá Halldór Björnsson markmannsþjálfara og Kjartan Kárason þrekþjálfara, en þeir hafa báðir starfað með Selfyssingum frá áramótum.