Hlaupahópur úr Hveragerði sem hleypur í Reykjavíkurmaraþoninu til minningar um Mikael Rúnar Jónsson, sem lést af slysförum 1.apríl 2017, aðeins 11 ára gamall, hefur fundið upp á nýstárlegri leið til að hvetja hópmeðlimi til dáða í hlaupaæfingum sumarsins.
Hópurinn hefur hannað sitt eigið app, til að halda utan um hlaup og göngu allra í hópnum var markmiðið er að komast samanlagt vegalengdina hringinn í kringum Ísland í æfingaferlinu. Það hefur nú þegar tekist og gott betur en það.
Appið virkar þannig að í hvert skipti sem einhver hópmeðlimur skráir inn hlaupna/gengna kílómetra uppfærist Íslandskort með stöðu hópsins á hringveginum. Í appinu er einnig hægt að nálgast tillögur að hlaupaæfingum og hlaupaleiðum sem hæfa hverjum og einum.
Síðasta sumar hljóp þessi sami hópur í minningu Mikaels Rúnars heitins. Nú hafa aðstandendur Mikaels Rúnars stofnað minningarsjóð í hans nafni, í þeim tilgangi að styrkja einstaklinga sem misst hafa ástvini á barnsaldri auk annarra góðra verka.
Hópurinn er öllum opinn, hægt er að skrá sig í hópinn á Hlaupastyrkur.is
Markmið hópsins var að hlaupa/ganga hringinn í kringum landið fyrir 24. ágúst. Það gengur vonum framar því hópurinn er kominn rúmlega hringinn og farinn að þræða firði, nes og tanga sem enginn hefur komið á áður. Nú er spurning hvort það náist að fara tvo hringi í kringum landið áður en Reykjavíkurmaraþonið hefst.