1.5 C
Selfoss
Miðvikudagur 27. nóvember 2024
Heim Íþróttir Körfuboltaleik frestað vegna hugsanlegs smits

Körfuboltaleik frestað vegna hugsanlegs smits

Selfyssingar á æfingu í Gjánni. Ljósmynd/Selfoss Karfa

Leik Selfoss gegn Sindra í 1. deild karla í körfubolta, sem fram átti að fara í kvöld á Hornafirði, hefur verið frestað vegna hugsanlegs smits í leikmannahópi Selfoss.

Kennari við Fjölbrautaskóla Suðurlands hefur greinst með kórónasmit og leikmaður Selfossliðsins sótti tíma hjá viðkomandi kennara, en það gerðu einnig nemendur í körfuboltaakademíu Selfoss-Körfu. Viðkomandi leikmaður æfði í gær með liðinu, en upplýsingar um smitið í skólanum bárust í morgun. Ekkert liggur fyrir um hvort leikmaðurinn, og þar með leikmannahópur Selfoss, hefur smitast af veirunni, en í ljósi þessara upplýsinga ákvað KKÍ að leikurinn í kvöld færi ekki fram. Leikmaðurinn sem um ræðir er ekki í sóttkví.

Í tilkynningu frá Selfoss-Körfu kemur fram að æfingar yngri iðkendamunu fara fram samkvæmt stundatöflu, enda eru grunn- og leikskólar starfandi.

KKÍ hefur ákveðið að fella niður alla leiki, nema í 1. deild karla og Dominosdeildum karla og kvenna.

Fyrri greinSkólastarf fellur niður í Árborg á mánudag
Næsta greinGunnar ráðinn prestur á Selfossi