Kristinn Þór Kristinsson, Umf. Samhygð, verður annar fulltrú Íslands á Heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum innanhúss sem fram um næstu helgi í Sopot í Póllandi.
Ásamt Kristni keppir Aníta Hinriksdóttir úr ÍR fyrir Íslands hönd en þau munu bæði keppa í 800m hlaupi.
Kristinn Þór hljóp stórgott 800 m hlaup um síðustu helgi og kom í mark á tímanum 1:51,22 sek sem er hans besti árangur í greininni og þar með nýtt HSK met.
Kristinn hefur verið að bæta sig jafnt og þétt í vetur og líklegur til frekari bætinga á Heimsmeistaramótinu. Á hann nú næst besta tíma karlmanns innanhúss í greininni en Íslandsmetið er í eigu Björns Margeirssonar og er það 1:51,07 sek.
Riðlakeppni í 800 m hlaupi kvenna og karla fer fram þann 7. mars. Konurnar keppa kl 12:00 og karlarnir klukkan 12:30 eða strax að lokninni riðlakeppni kvenna. Úrslitin í báðum greinum eru síðan þann 9. mars. Konurnar hlaupa til úrslita kl 15:35 og karlarnir kl 16:20.