Kristinn Þór Kristinsson, Samhygð, varð fyrstur Íslendinga til að vinna til verðlauna í frjálsíþróttakeppni Smáþjóðaleikanna, en keppni hófst í Reykjavík í dag.
Kristinn varð þriðji í 800 metra hlaupi á tímanum 1:58,94 mín.
Aðstæður voru ekki góðar í hlaupinu, kuldi og norðanvindur sem gerði keppendum erfitt fyrir. Kristinn átti ágætt hlaup og gerði mjög vel á lokasprettinum þar sem hann tryggði sér bronsið með því að taka fram úr tveimur keppinautum sínum á síðustu metrunum.