Heilsu-, íþrótta- og æskulýðsnefnd Rangárþings eystra valdi knattspyrnumanninn Lárus Viðar Stefánsson, KFR, íþróttamann ársins 2013 og var hann verðlaunaður á 17. júní.
Lárus lék 17 leiki fyrir meistaraflokks KFR í síðast liðið sumar og skoraði eitt mark. Í þessum leikjum var hann lykilmaður á miðjusvæðinu í liði sem náði þriðja sæti í 3. deild. Árangur liðsins fór fram úr björtustu vonum en liðið er byggt upp á heimamönnum og kostnaður við það ekki eins mikill og við önnur félög í sömu deild.
Lárus hefur auk þessa þjálfað börn og unglinga í sveitarfélaginu í mörg ár og er íbúum sveitarfélagsins góð fyrirmynd þegar kemur að heilsu, næringu og hreyfingu. Lárus fær að gjöf farandbikar og eignabikar, árskort í íþróttamiðstöðina og gjafabréf í Intersport á Selfossi.