Knattspyrnudeild Hamars hefur ráðið Liam Killa sem þjálfara meistaraflokks karla næstu tvö árin. Liam kom til liðsins sem leikmaður fyrir ári síðan en hann er búsettur í Hveragerði ásamt unnustu og barni.
Liam er að taka sín fyrstu skref í þjálfun en hefur verið að sækja þjálfaranámskeið hjá KSÍ og mun halda því áfram. Hann er reynslumikill leikmaður, ólst upp í Swansea og kom upp úr akademíu þeirra. Liam hefur spilað sem atvinnumaður í Eistlandi og Færeyjum við góðan orðstír. Á Íslandi hefur Liam leikið með Haukum, Magna og Ægi áður en hann gekk til liðs við Hamar.
Í tilkynningu frá Hamri segjast stjórnarmenn gríðarlega með ánægðir að fá Liam í starfið og eru miklar vonir bundnar við þennan unga og efnilega þjálfara. Æfingar hefjast í næstu viku og verður leikmannahópurinn skoðaður í kjölfar þess. Mikill metnaður er hjá félaginu að halda áfram þeirri uppbyggingu sem hefur verið að undanförnu.