Lið Bergrósar náði frábærum árangri í keppni þeirra bestu

Lucy, Reese og Bergrós til í slaginn á Wodapalooza. Ljósmynd/Aðsend

Selfyssingurinn Bergrós Björnsdóttir var meðal keppenda á TYR Wodapalooza stórmótinu í CrossFit sem haldið var í Miami í Bandaríkjunum um helgina.

Keppnin er liðakeppni en með Bergrós í liði voru helstu keppinautar hennar af undanförnum heimsleikum, hin bandaríska Reese Littlewood og Írinn Lucy McGonigle. Saman mynduðu þær liðið LittleMcDottir Coming In Hotter og náðu frábærum árangri.

Þrátt fyrir að vera yngsta lið keppninnar í kvennaflokki enduðu þær í tólfta sæti af 40 liðum. Keppt var í sex greinum og náðu þær topp fimm í tveimur greinum, og áttu meðal annars rosalega innkomu í mótið þar sem þær voru í 2. sæti eftir fyrstu grein.

„Öll þessi ár sem við kepptum á móti hverri annarri á meðan við hefðum átt að sameina krafta okkar,“ sagði Lucy á Instagram en þremenningarnir voru greinilega hæstánægðar með samvinnuna og samveruna á mótinu.

Stjörnum prýtt lið Annie Mistar Þórisdóttur, Katrínar Tönju Davíðsdóttur og Söru Sigmundsdóttur varð í 17. sæti á mótinu en þær eru ýmist að koma til baka til keppni eftir barnsburð eða meiðsli.

Íslendingarnir á Wodapalooza (f.v.) Sara, Bergrós, Annie Mist og Katrín Tanja. Ljósmynd/Aðsend
Fyrri greinViðbyggingu við íþróttahúsið verði hraðað eins og kostur er
Næsta greinElías Karl semur við uppeldisfélagið