Héraðsmót í golfi fatlaðra var haldið á Ljósafossvelli þann 28. ágúst síðastliðinn. Keppendur voru tíu talsins og hafa þeir æft golf í sumar undir stjórn Gylfa Sigurjónssonar golfkennara.
Eins og undanfarin sumur tóku starfsmenn Ljósafossvirkjunar vel á móti keppendum og var þeim boðið á sýningu í Ljósafossvirkjun og pizzahlaðborð að móti loknu.
Úrslit voru eftirfarandi:
Kvennaflokkur: 1. sæti María Sigurjónsdóttir, 2. sæti Telma Þöll Þorbjörnsdóttir, 3. sæti Sigríður Erna Kristinsdóttir
Karlaflokkur: 1. sæti Eðvald Huginn Hólmarsson, 2. sæti Reynir Ingólfsson, 3. sæti Árni Bárðarson.