Selfyssingurinn Maria Þórisdóttir hefur verið valin í norska A-landsliðið í knattspyrnu í fyrsta sinn fyrir Algarve-bikarinn þar sem Noregur mætir meðal annars Íslandi á föstudag.
Mbl.is greinir frá þessu en Maria sagðist við Morgunblaðið á dögunum ekki útiloka að leika fyrir A-landslið Íslands í framtíðinni, þrátt fyrir að hafa alltaf búið í Noregi.
Ekki er víst að leikir í Algarve-bikarnum komi í veg fyrir að hún geti spilað fyrir Ísland síðar. Reglur FIFA kveða þó á um að ef leikmaður leiki í aðal- eða undankeppni stórmóts með einu A-landsliði geti hann ekki leikið síðar með öðru.
Maria er dóttir Þóris Hergeirssonar og Kirsten Gaard en hún hefur síðustu daga verið með U23-landsliði Noregs á móti á La Manga á Spáni.