Marín Laufey Davíðsdóttir, Hamri og Ragnar Nathanaelsson, Þór, fengu viðurkenningu í dag þegar verðlaun voru veitt fyrir bestu frammistöðu í Domino's deildum karla og kvenna í körfubolta fyrir fyrri hluta keppnistímabilsins.
Að venju voru fimm manna úrvalslið deildanna tilkynnt og verðlaun veitt fyrir besta þjálfarann og dugnaðarforkinn í báðum deildum.
Ragnar var valinn í úrvalslið karla og Marín var valinn dugnaðarforkurinn í kvennadeildinni.
Eftirfarandi leikmenn og þjálfarar fengu verðlaun:
Úrvalslið Domino’s deildar kvenna í fyrri hlutanum 2013-2014
Hildur Sigurðardóttir · Snæfell
Sara Rún Hinriksdóttir · Keflavík
Lele Hardy · Haukar
Bryndís Guðmundsdóttir · Keflavík
Hildur Björg Kjartansdóttir · Snæfell
Dugnaðarforkurinn:
Marín Laufey Davíðsdóttir · Hamar
Besti þjálfarinn:
Andy Johnston · Keflavík
Besti leikmaður Domino’s deildar kvenna:
Lele Hardy · Haukar
Úrvalslið Domino’s deildar karla í fyrri hlutanum 2013-2014
Martin Hermannsson · KR
Elvar Már Friðriksson · Njarðvík
Pavel Ermolinskij · KR
Michael Craion · Keflavík
Ragnar Ágúst Nathanaelsson · Þór Þorlákshöfn
Dugnaðarforkurinn:
Darri Hilmarsson · KR
Besti þjálfarinn:
Finnur Freyr Stefánsson · KR
Besti leikmaður Domino’s deildar karla:
Elvar Már Friðriksson · Njarðvík