Metþátttaka verður á fimmtánda Unglingalandsmóti UMFÍ sem fer fram á Selfossi um verslunarmannahelgina. Mótið verður sett á föstudagskvöld.
Skráningu á mótið lauk formlega í gærkvöldi en þá höfðu um 1.900 þátttakendur skráð sig til þátttöku en ekki er útilokað sú tala muni hækka og færast nær 2.000 þúsund þátttakendum, að sögn forsvarsmanna mótsins.
Skipuleggjendur unglingalandsmótsins gera ráð fyrir miklum fjölda gesta og er ekki ólíklegt að þeir verði hátt í 15 þúsund. Lokaspretturinn í undirbúningnum stendur nú yfir en unnið hefur verið að því að yfirborðsfrágangi og fegrun vallarsvæðisins síðustu daga auk þess sem Selfossbær er smátt og smátt að klæðast í hátíðarbúning í tilefni af mótinu.