Mikil ánægja er með nýja íþróttagólfið sem lagt var í haust í íþróttahúsi Hvergerðinga við Skólamörk.
Nýja gólfið er frá Connor í Bandaríkjunum en fyrirtækið sérhæfir sig í íþróttagólfum, ýmist punkt- eða flatfjaðrandi. Connors er einnig umhverfisvænt fyrirtæki sem plantar fleiri trjám en þeir fella.
Stepp ehf / Parket&Gólf er söluaðili Connors íþróttagólfa hér á landi og voru gólflagningamenn frá Horn í horn sem lögðu gólfið og sáu um allan frágang. Mörg alþjóðleg íþróttasambönd gefa gólfinu sinn gæðastimpil eins og körfuknattleiks-, handknattleiks- og badmintonsamböndin.