99. héraðsþing Héraðssambandsins Skarphéðins verður haldið í Þingborg í Flóahreppi fimmtudaginn 15. apríl næstkomandi og hefst stundvíslega kl. 17:00.
Vegna þeirra samkomutakmarkana sem eru enn í gildi er óvíst hvort þinghaldið verði með hefðbundnum hætti.
Til greina kemur að takmarka fjölda fulltrúa með einhverjum hætti, en það var gert á síðasta héraðsþingi í september síðastliðnum.
Nánari upplýsingar um héraðsþingið verða sendar út þegar nær dregur.