Sex karlar af sambandssvæði HSK tóku þátt í Meistaramóti í öldunga í frjálsum íþróttum sem fram fór í Reykjavík um síðustu helgi og settu fjórir þeirra HSK met.
Ólafur Guðmundsson Selfossi setti fjögur met í flokki 50-55 ára. Hann þríbætti metið í langstökki, stökk lengst 5,25 metra og þá bætti hann met Jasons Ívarssonar í þrístökki um 17 sentimetra, stökk 9,88 metra.
Guðbjörn Árnason úr Dímon tvíbætti met Yngva Karls Jónssonar í hástökki í 55-59 ára flokki, stökk hæst 1,44 metra, en gamla metið var 1,40m.
Ingvar Garðarsson Umf. Skeiðamanna bætti HSK met Markúsar Ívarssonar í 800 metra hlaupi í flokki 60-64 ára, en hann hljóp á 2:49,31 mín. og bætti metið um rúmar sex sekúndur.
Loks tvíbætti Jón M. Ívarsson úr Þjótanda metið í kúluvarpi í flokki 70–74 ára, kastaði lengst 7,25 metra og bætti ársgamalt met Sigmundar Stefánssonar um 58 sentimetra.