Norðurlandameistarar heiðraðir

Ungmennafélag Selfoss heiðraði í dag nýkrýnda Norðurlandameistara í taekwondo, þau Ingibjörgu Erlu Grétarsdóttur og Daníel Jens Pétursson.

Athöfnin fór fram í félagsheimili Umf. Selfoss, Tíbrá, í dag þar sem Ingibjörg og Daníel fengu afhentan ferðastyrk frá taekwondodeildinni, gjafabréf frá Hótel Selfossi og blóm og bíómiða frá Sveitarfélaginu Árborg.

Mótið fór fram í Reykjanesbæ um síðustu helgi þar sem Umf. Selfoss átti sjö keppendur sem allir stóðu sig með stakri prýði og voru félagi sínu til mikils sóma.

Daníel vann Thomas Bruvik frá Noregi með 12 stigum gegn 6 í -80 kg flokki, sem var sterkasti flokkurinn, en þess má geta að Thomas er margfaldur heims- og Evrópumeistari upp alla þyngdarflokka. Næst keppti Daníel til úrslita við Kristmund Gíslason og sá bardagi fór 6-5. Daníel hafði fengið högg á vinstra hné í bardaganum við Thomas og ákvað að hlífa sér í bardaganum við Kristmund en gætti þess þó að hleypa honum ekki framúr sér.

Ingibjörg Erla vann sinn flokk með miklum yfirburðum og það er greinilegt að hún er allra besta sparring kona landsins. Hún vann Maríu G. Sverrisdóttur með 19 stigum gegn 1 og Helmi Harkonen frá Finnlandi með 11 stigum gegn 4.

Fyrri greinStrákarnir okkar: Viðar skoraði og lagði upp
Næsta greinÍvar sigraði í Jósepsdal