Selfyssingurinn Ómar Ingi Magnússon var valinn í úrvalslið á æfingamóti sem íslenska landsliðið í handbolta lék á um helgina.
mbl.is greinir frá þessu
Ómar var markahæstur í liði Íslands í leikjunum gegn Pólverjum og Norðmönnum, og næstmarkahæstur gegn Svíum. Ómar leikur með danska úrvalsdeildarliði Århus.
Strákarnir okkar unnu Pólverja, töpuðu fyrir Norðmönnum og gerðu jafntefli gegn Svíum
Úrvalslið mótsins:
Markmaður: Torbjørn Bergerud, Noregur
Vinstri hornamaður: Emil Frend Öfors, Svíþjóð
Línumaður: Bjarte Myrhol, Noregur
Hægri hornamaður: Magnus Søndenå, Noregur
Miðjumaður: Sander Sagosen, Noregur
Vinstri skytta: Rafal Przybylski, Pólland
Hægri skytta: Ómar Ingi Magnússon, Ísland