Áramótamót frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss fór fram íþróttahúsi Vallaskóla sl. þriðjudag. Örn Davíðsson, FH, sigraði í öllum fimm karlagreinum mótsins.
Örn náði ársbesta árangri Íslendings í hástökki án atrennu þegar hann stökk 1,66 m. Hann stökk einnig lengst allra í langstökki án atrennu 3,01 m og í þrístökki án atrennu 8,68 m. Örn vippaði sér yfir 1,70 m í hástökki og kastaði kúlunni 13,62 m.
Ólafur Guðmundsson, Laugdælum, varð í öðru sæti í kúluvarpi með 12,42 m, í hástökki án atrennu með 1,55 m og að lokum stökk hann til þriðja sætis í hástökki með 1,60 m.
Orri Davíðsson, Selfoss, stökk til þriðja sætis í hástökki með 1,60 m og bróðir hans úr sama félagi, Þór Davíðsson, kastaði kúlunni til þriðja sætis með 11,10 m löngu kasti. Dagur Fannar Magnússon, Selfossi, stökk 7,67m í þrístökki og hlaut þriðju verðlaun fyrir og félagi hans, Bjarki R. Bjarnarson, stökk til þriðja sætis í langstökki án atrennu þegar hann stökk 2,70 m og setti nýtt HSK met í flokki 13 ára. Teitur Örn Einarsson, Selfossi, sigraði í kúluvarpi í flokki 14 ára þegar hann kastaði 4kg kúlunni 10,17 m.
Fjóla Signý Hannesdóttir, Selfossi, var atkvæðamest í kvennaflokki. Hún náði ársbesta afreki Íslendings í langstökki án atrennu með 2,58 m og í þrístökki án atrennu með 7,83 m og sigraði hún í þeim greinum auk þess sem hún stökk 1,50 m í hástökki sem dugði til sigurs. Í hástökki án atrennu lenti hún í öðru sæti með 1,25m og hún kastaði næstlengst allra í kúluvarpi er hún þeytti kúlunni 9,08 m.
Eva Lind Elíasdóttir, Þór, sigraði í hástökki án atrennu með 1,25 m og í kúluvarpi með 10,12 m. Hún stökk næstlengst allra í langstökki án atrennu, 2,38 m, og í þrístökki án atrennu er hún sveif 6,85m og hún stökk einnig næst hæst allra í hástökkinu með því að vippa sér yfir 1,45 m.
Andrea Sól Marteinsdóttir, Selfossi, hlaut þriðju verðlaun fyrir að kasta kúlunni 9,04 m og að stökkva 2,25 m í langstökki án atrennu og að lokum varð Kristín Rós Arnardóttir, Selfossi, í þriðja sæti í þremur greinum. Hún stökk 1,15 m í hástökki án atrennu, í þrístökki án atrennu stökk hún 6,84 m og í hástökki vippaði hún sér yfir 1,40 m.