Selfyssingar hafa endurheimt toppsæti 2. deildar karla í knattspyrnu eftir öruggan sigur á Fjarðabyggð á Eskifirði í dag, 1-3.
Hrvoje Tokic kom Selfyssingum yfir á 29. mínútu en fleiri mörk voru ekki skoruð í fyrri hálfleik.
Þór Llorens Þórðarson bætti öðru marki Selfoss við snemma í seinni hálfleik og á 66. mínútu kom Adam Örn Sveinbjörnsson Selfossi í 0-3. Fleiri urðu mörkin ekki hjá þeim vínrauðu en Fjarðabyggð minnkaði muninn í uppbótartíma og lokatölur urðu 1-3.
Baráttan í 2. deildinni er gríðarlega jöfn, nánast frá efsta sæti, þar sem Selfyssingar sitja með 23 stig, niður í 9. sætið þar sem Völsungur er með 17 stig.