Selfyssingar eru komnir aftur á sigurbraut eftir þrjú töp í röð í Olís-deild karla í handbolta. Liðið lagði FH örugglega að velli í Kaplakrika í kvöld, 32-36.
„Við höfum kortlagt FH-liðið mjög vel og mættum klárir í slaginn eftir að hafa tapað þremur leikjum í röð. Við vorum staðráðnir í að leggja allt í sölurnar að þessu sinni og vildum sýna mönnum að við eigum heima í þessari deild. Vissulega er ekkert gefið en ef við mætum af krafti og berjumst í hverjum leik þá getum við gert ýmislegt,“ sagði Elvar Örn Jónsson í samtali við mbl.is eftir leik.
Selfyssingar voru mun sterkari í fyrri hálfleik og náðu mest níu marka forskoti. Staðan í hálfleik var 11-18. Vörnin var góð hjá Selfyssingum í fyrri hálfleik og markvarslan fylgdi með.
Í síðari hálfleik héldu Selfyssingar sínu striki fyrstu tuttugu mínúturnar og náðu mest níu marka forskoti, 22-31. Undir lokin náðu FH-ingar að klóra í bakkann en bilið var orðið of mikið fyrir þá til að vinna það upp.
Einar Sverrisson var markahæstur Selfyssinga með 11 mörk, Elvar Örn Jónsson skoraði 7/2, Guðjón Ágústsson 6, Eyvindur Hrannar Gunnarsson og Hergeir Grímsson 3 og þeir Guðni Ingvarsson, Andri Már Sveinsson og Sverrir Pálsson skoruðu allir 2 mörk.
Grétar Ari Guðjónsson varði 12 skot í marki Selfoss, þar af 8 í fyrri hálfleik.
Selfoss er nú í 4. sæti deildarinnar með 6 stig.