Lið Umf. Selfoss vann öruggan sigur á aldursflokkamóti HSK í frjálsum íþróttum sem haldið var í íþróttahöllinni í Kaplakrika síðastliðinn sunnudag.
Lið Selfoss sigraði í stigakeppni félaganna með 422 stig en lið Garps varð í 2. sæti með 128,5 stig og þar á eftir Þjótandi með 104 stig.
Selfyssingar unnu til sautján gullverðlauna á mótinu og þar af varð Tómas Þorsteinsson fjórfaldur héraðsmeistari, en hann sigraði í 600 m hlaupi, 60 m hlaupi, langstökki og kúluvarpi í flokki 14 ára pilta.
Hjá stúlkunum varð Esja Sigríður Nönnudóttir, Garpi, sömuleiðis fjórfaldur meistari, en hún sigraði í 600 m hlaupi, 60 m hlaupi, hástökki og langstökki 11 ára stúlkna.
Enginn sló þó við Kristófer Árna Jónssyni, Heklu, sem sigraði í fimm greinum í flokki 12 ára pilta og varð fimmfaldur héraðsmeistari; í 60 m hlaupi, hástökki, langstökki, 600 m hlaupi og 60 m grindahlaupi.