Selfoss vann öruggan sigur á Aftureldingu í Olís-deild kvenna í handbolta í dag, 24-34.
Selfoss hafði fjögurra marka forystu í hálfleik, 11-15, en munurinn jókst til muna í síðari hálfleik.
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir var markahæst Selfyssinga með 7 mörk, Elena Birgisdóttir og Perla Ruth Albertsdóttir skoruðu 6, Kristrún Steinþórsdóttir, Hildur Öder Einarsdóttir og Adina Ghidoarca 4 og þær Kara Rún Árnadóttir, Hulda Dís Þrastardóttir og Thelma Sif Kristjánsdóttir skoruðu 1 mark hver.
Selfoss er í 6. sæti með 10 stig, en stutt er í næstu lið fyrir ofan. Þannig eru Framarar í 3. sæti deildarinnar með 11 stig.