Selfoss er úr leik í Mjólkurbikar kvenna í knattspyrnu eftir 0-2 tap gegn bikarmeisturum Breiðabliks á Selfossvelli í dag.
„Mér fannst þetta bara ótrúlega flottur leikur hjá okkur. Mér fannst við vera með Blikana í köðlunum lengst af þessum leik. Við erum að skapa okkur fínar opnanir og góð færi. Auðvitað er ég sár og svekktur yfir því að vera búinn í bikarnum, ég hefði viljað fara á Laugardalsvöll, en á sama tíma er ég ótrúlega stoltur yfir líklega okkar bestu frammistöðu í ár,“ sagði Björn Sigurbjörnsson, þjálfari Selfoss, í samtali við sunnlenska.is eftir leik.
Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann og færin fjölmörg. Blikar komust yfir á 19. mínútu með afar slysalegu marki. Tiffany Sornpao, markvörður Selfoss, hreinsaði þá frá marki sínu en skaut beint í Öglu Maríu Albertsdóttu og af henni lak boltinn í markið. Selfyssingar áttu margar álitlegar sóknir en Blikar fengu betri færi og Sornpao varði oft vel í marki Selfoss.
Seinni hálfleikurinn fór mjög rólega af stað en síðustu tuttugu mínúturnar hertu Selfyssingar tökin og færðu sig ofar á völlinn. Færin voru þó af mjög skornum skammti og þegar komið var í uppbótartímann fengu gestirnir skyndisókn sem lauk með þrumuskoti frá Helenu Hálfdánardóttur í skeytin inn.
Breiðablik mætir því Val í úrslitaleik Mjólkurbikarsins þann 27. ágúst næstkomandi.