Hinn 218 cm hái miðherji úr Hveragerði, Ragnar Á. Nathanaelsson heldur nú yfir lækinn og mun leika með Þór Þorlákshöfn í Domino´s deild karla í körfubolta á næstu leíktíð.
Ragnar er Hamarsmaður að upplagi og var með 9,1 stig og 11,8 fráköst með Hamri í 1. deild á síðustu leiktíð.
Ragnar hefur leikið í Hveragerði upp alla yngri flokka og einnig í sameiginlegu liði Hamars og Þórs í drengja- og unglingaflokki.
Ragnar er að fara á Smáþjóðaleikana í Lúxemborg með A- landsliði Íslands í dag.
Karfan greindi frá þessu