Ragnarsmótið í handbolta hefst á morgun, miðvikudaginn 8. ágúst. Mótið er eitt elsta æfingamót á Íslandi en það er nú haldið í 28. skipti.
Ragnarsmótið er haldið fyrr en venjulega í ár vegna þátttöku Selfyssinga í EHF Evrópukeppninni í byrjun september. Mótið fer nú í fyrsta skipti fram í íþróttahúsinu Iðu, sem er óðum að taka á sig mynd sem nýr heimavöllur handboltans á Selfossi.
Leikið verður á sér karla- og kvennamóti eins og undanfarin ár en Ragnarsmót kvenna fer fram 16.-18. ágúst.
Í Ragnarsmóti karla verður leikið í tveimur riðlum. Í A-riðli leika Selfoss, ÍR og ÍBV og í B-riðli Haukar, Afturelding og Víkingur
Í Ragnarsmóti kvenna verður leikið í einum riðli, þar mætast Afturelding, Fjölnir og Haukar ásamt Selfyssingum.
Leikjafyrirkomulag er eins og hér segir:
Ragnarsmót karla
8. ágúst kl 18:30 Selfoss-ÍR
8. ágúst kl 20:15 Haukar – Afturelding
9. ágúst kl 18:30 ÍBV-ÍR
9. ágúst kl 20:15 Víkingur-Afturelding
10. ágúst kl 18:30 Haukar-Víkingur
10. ágúst kl 20:15 Selfoss-ÍBV
11. ágúst kl 12:00 úrslitaleikur um 5.sæti
11. ágúst kl 14:00 úrslitaleikur um 3.sæti
11. ágúst kl 16:00 úrslitaleikur um 1.sæti
Ragnarsmót kvenna
16. ágúst kl 18:30 Selfoss-Afturelding
16. ágúst kl 20:15 Fjölnir-Haukar
17. ágúst 18:30 Selfoss-Haukar
17. ágúst 20:15 Afturelding-Fjölnir
18. ágúst kl 12:00 Haukar-Afturelding
18. ágúst kl 14:00 Selfoss-Fjölnir