Kvennalið Selfoss vann 24-21 sigur á HK í Olís-deildinni í handbolta í kvöld þegar liðin mættust í Vallaskóla. Leikurinn var bráðfjörugur og spennandi.
HK byrjaði betur og leiddi 7-10 þegar tuttugu mínútur voru liðnar af leiknum en Selfoss lauk fyrri hálfleik á 5-1 áhlaupi og tryggði sér forystu í hálfleik, 12-11. Áslaug Ýr Bragadóttir, markvörður, átti góðan leik og hélt Selfyssingum inni í leiknum í fyrri hálfleik en sóknarleikur liðsins var ekki burðugur framan af.
Í upphafi síðari hálfleiks virtust þær vínrauðu ætla að gera út um leikinn og á 40. mínútu var staðan orðin 18-13. Þá slakaði Selfossliðið full mikið á klónni og á tíu mínútna kafla náði HK að jafna, 19-19. Lokamínúturnar voru æsispennandi og það var ekki fyrr en rúm mínúta var eftir að leikurinn var kominn aftur í öruggar hendur Selfossliðsins.
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir var markahæst Selfyssinga með 9/5 mörk, Adina Ghidoarca skoraði 5, Carmen Palamariu 4, Perla Ruth Albertsdóttir 3, Kristrún Steinþórsdóttir 2 og Hildur Öder Einarsdóttir 1.
Áslaug Ýr Bragadóttir átti frábæran leik í marki Selfoss, varði 20/1 skot og var með 50% markvörslu.
Selfyssingar sitja nú í 7. sæti deildarinnar með 14 stig og má segja að liðið sé neðst í efri hluta deildarinnar. Talsvert bil er niður í næstu lið fyrir neðan sem eru í þéttum pakka á neðri hluta stigatöflunnar.