Sara og Díva sterkastar allra

Það var mikið um dýrðir og glæsihesta á skautasvellinu í Laugardalnum í gærkvöld. Ráslistann prýddu Íslands-, Landsmóts- og heimsmeistarar síðasta árs, sem og sigurvegarar fyrri Ístölta.

Það var hörð baráttan á toppnum í A-úrslitunum. John Kristinn Sigurjónsson og Brynja frá Bakkakoti komu mjög fersk uppúr B-úrslitunum og voru efst eftir hægt tölt og hraðabreytingar. En á fegurðartöltinu sýndu Sara Ástþórsdóttir og Díva frá Álfhólum hvers vegna hryssan er með 10 fyrir tölt í kynbótadómi og seig framúr keppinautum sínum.

Úrslitin urðu því þau að Sara sigraði verðskuldað á Dívu, John Kristinn og Eyjólfur Þorsteinsson á Háfeta frá Úlfsstöðum urðu jafnir í 2.-3. sæti, Leó Geir Arnarson á Krít varð fjórði og hjónin á Árbakka þau Hinrik Bragason og Hulda Gústafsdóttir á þeim Smyrli og Sveig í 5. og 6. sæti.

A-úrslit
1. Sara Ástþórsdóttir / Díva frá Álfhólum
2. John Kristinn Sigurjónsson / Brynja frá Bakkakoti
3. Eyjólfur Þorsteinsson / Háfeti frá Úlfsstöðum
4. Leó Geir Arnarson / Krít frá Miðhjáleigu
5. Hinrik Bragason / Smyrill frá Hrísum
6. Hulda Gústafsdóttir / Sveigur frá Varmadal

B-úrslit
1. John Kristinn Sigurjónsson / Brynja frá Bakkakoti
2. Sigurður Óli Kristinsson / Þöll frá Heiði
3. Árni Björn Pálsson / Fura frá Enni
4. Jakob Svavar Sigurðsson / Eldur frá Köldukinn
5. Frauke Schenzel / Gaumur frá Dalsholti

Fyrri greinFyrrum stjarna úr enska boltanum til reynslu á Selfossi
Næsta greinSebrasvanur í Mýrdalnum