Dregið var í Coca-Cola bikarnum í handbolta í dag og þar munu Selfyssingar mæta Þrótti Reykjavík í 8-liða úrslitum.
Þar sem Þróttur R. er í Grill 66 deildinni fá þeir heimaleik, leikurinn fer því fram í Laugardalshöllinni þann 8. eða 9. febrúar næstkomandi.
Þróttur er nú í 4.sæti í Grill 66 deildinni og hafa unnið 6 af 10 leikjum sínum. Aðstoðarþjálfari liðsins er Sebastian Alexandersson og í liðinu eru tveir Selfyssingar, þeir Magnús Öder Einarsson og Sævar Ingi Eiðsson.
Þessi lið mætast í 8-liða úrslitum Coca-Cola bikars karla:
FH – Fram
Haukar – Valur
Grótta – ÍBV
Þróttur R. – Selfoss