Kvennalið Selfoss mætti Tindastól í deildarbikarnum í knattspyrnu á Selfossvelli í dag.
Gestirnir frá Sauðárkróki reyndust sterkari í leiknum og skoruðu tvö mörk, undir lok fyrri hálfleiks og í upphafi seinni hálfleiks. Selfyssingar áttu ágæta spretti inn á milli en náðu ekki að nýta sín færi. Lokatölur 0-2.
Þær vínrauðu sitja áfram á botni riðilsins án stiga og hafa ekki enn náð að skora mark í fjórum leikjum.