Selfoss dróst á móti 3. deildarliði Árbæjar í undanúrslitum neðrideildarbikars karla í knattspyrnu, fotbolti.net bikarnum.
Leikirnir í undanúrslitunum fara fram laugardaginn 21. september, viku eftir að Selfoss lýkur keppni í 2. deildinni.
Á leið sinni í undanúrslit hafa Selfyssingar lagt að velli Ægi, KFG og núna síðast Hauka.
Komist Selfyssingar í sjálfan úrslitaleikinn munu þeir mæta KFA eða Tindastól á Laugardalsvellinum föstudaginn 27. september.