Kvennalið Selfoss dróst á móti FH á útivelli í 16-liða úrslitum bikarkeppni kvenna í handbolta.
Dregið var í hádeginu í dag, og verður einn úrvalsdeildarslagur í 16-liða úrslitunum en ÍBV og KA/Þór mætast í Eyjum.
Bikarmeistarar Vals og Íslandsmeistarar Fram sitja hjá í 16-liða úrslitunum en aðrir leikir í þessari umferð verða:
Víkingur – Fjölnir/Fylkir
ÍR – HK
Afturelding – Stjarnan
Grótta – Haukar
Leikur Selfoss og FH mun fara fram 15. eða 16. nóvember í Kaplakrika.